IDEAS Tintin´s Moon Rocket | Kubbabúðin.is

Nýtt

IDEAS Tintin´s Moon Rocket

LEGO21367

Glæsilegt byggingarsett fyrir fullorðna aðdáendur Tinna. Með þessu LEGO® Ideas setti gefst kostur á að endurskapa hina sígildu tunglflaug úr myndasögunum Áfangastaður tunglið og Landkönnuðir á tunglinu, byggja hana af nákvæmni og stilla upp á fallegum stað.

Með settinu fylgja sex smáfígúrur: Tinni, Kolbeinn kafteinn, rannsóknarlögreglumennirnir Skapti og Skafti (Thomson og Thompson) og Prófessor Vandráður. Allar persónurnar eru klæddar í geimbúninga með hjálma og súrefniskúta. Auk þess fylgir hundurinn Tobbi.

Í flauginni leynist stjórnstöð sem hægt er að opna með því að fjarlægja spjald á oddi hennar. Þar má sjá vandaða útfærslu á stjórnklefa og stilla persónu upp án hjálms og súrefniskúts.

Settið býður upp á yfirgripsmikið og ánægjulegt byggingarferli sem höfðar til fullorðinna með áhuga á myndasögunum um Tinna. 

• Aldur: 18+
• Inniheldur: Tunglflaug, sex smáfígúrur og Míló
• Hentar: Til byggingar og uppstillingar

Framleiðandi: LEGO