Nyjung lego dots | Kubbabúðin.is

LEGO® DOTS

Skemmtileg leið fyrir börn til að skapa og hanna sín eigin armbönd, pennastatíf, skartgripastand og myndastanda. DOTS er frábær þjálfun í hugmyndsköpun og fyrir börn að tjá sig með listrænum hætti. 

LEGO® DOTS Armböndin

Armböndin eru fáanleg í t.d.  regnboga-,einhyrninga og dýraþema. Hverju armbandi fylgja 32 DOTS kubbar til að setja á armbandið og skapa  einstakan fylgihlut. Hægt er að fylgja leiðbeiningum eða skapa sitt eigið munstur. Til viðbótar er hægt að kaupa aukapoka með DOTS kubbum og í hverjum poka eru 10 óvæntir DOTS kubbar til að gera DOTS vörurnar algjörlega einstakar. 

Skoða DOTS í vefverslun

LEGO® DOTS Skartgripastandur, myndahaldari og pennastatíf.

Skartgripastandurinn er frábær leið til að geyma skartgripi. Standurinn er með bakka og fimm króka, sem henta til dæmis fyrir hálsfestar og armbönd. Síðan er hægt að hanna standinn eftir eigin höfði með litríku DOTS kubbunum. 

Myndahaldarinn eru þrír kubbar sem hægt er að hanna sem kött, hund eða önnur dýr með DOTS kubbunum.

Pennastatífið er eins og ananas með loki og grænum laufum. Lítið box í laginu eins og melóna fylgir, sem er tilvalið fyrir bréfaklemmur. Hægt er að fylgja leiðbeiningum eða skapa sitt eigið munstur með DOTS kubbunum.